Lionssalurinn Lundur í Auðbrekku

Veldu skilyrði fyrir kostnað og tímasetningar, veitingar fyrir matseðla og verð eða myndir

Vegna fermingarveislu í Veislusalnum Lundi 2012

Salurinn er leigður tvisvar hvern dag nema greitt sé a.m.k. fyrir 80 fullorðna en þá geta tímasetningar
verið nokkuð frjálsar varðandi byrjun/lok veislu, skreytingar o.fl.
Fyrir aðrar veislur gilda þessar reglur
Fyrri veislan getur byrjað kl. 12 og staðið til kl. 16
Seinni veislan getur byrjað kl. 18 og staðið til kl. 22

Aðstandendur geta komið um 60 mínútum á undan gestum til að stilla upp
fermingarkerti, borðskrauti, gestabók o.fl. eða komið því til okkar áður þ.a. við getum byrjað
Á staðnum er stór kæliklefi og frystiskápur fyrir tertur
Smáskraut, glimmer og útikerti eru ekki leyfð í eða við salinn
Gos er selt á staðnum á kr. 250 fyrir hvern líter (Pepsi – Pepsi Max – 7-up – Egils appelsín)
Kaffi er innifalið í veitingaverði
Á staðnum er hljóðkerfi, míkrófónn, píanó, lítið tjald og ræðupúlt
Góð aðstaða er til að setja upp barnahorn með sjónvarpi/vhs/dvd, litabókum og leikföngum

Innifalið í verði á veitingum er uppstilltur salur með dúkum, borðbúnaði og kertum
Vegna þess að 2 veislur geta verið sama dag stýrum við uppsetningu á borðum
2 starfsmenn frá okkur eru á staðnum og fá greitt sérstaklega kr. 38.000 samtals
Í stærri veislum er starfsmönnum bætt við á okkar kostnað ef við teljum þörf á því
Innborgun kr. 60.000 greiðist við pöntun og dregst síðar frá veitingareikningi
50% af veitingum skulu greiddar eigi síðar en viku fyrir veislu
Greitt skal inn á reikning 1125-26-001570 kt. 4802071570 Veislumatur ehf
Reikningur fyrir greiðslu er síðan sendur í pósti eftir veislu
Börn 6-11 ára greiða hálft verð, 12 ára og eldri fullt verð en 5 ára og yngri ekkert
Lágmarksgreiðsla er fyrir 50 fullorðna auk þjónustufólks

Salurinn er eingöngu falur með veitingum, sjá "veitingar"
Frjálst er þó að koma með kökur/tertur eftir matinn
Munið að koma með servíettur og fallegan penna við gestabókina

---

Upplýsingar um fermingarveislu
• Cocktail veisluþjónusta •
sími: 899-8994
fermingarveislur@fermingarveislur.is

Pantanir og fyrirspurnir um lausar dagsetningar, matseðla og verð
eru aðeins veittar í tölvupósti, nánari upplýsingar eru veittar í síma

© Cocktail veisluþjónusta
sími: 899-8994

© 2008, Cocktail veisluþjónusta
Fyrirspurn - cocktail@cocktail.is

Cocktail veisluþjónusta - Veislumatur ehf - kt. 480207-1570 - vsk. 93319 - Bæjarhraun 4, 220 Hafnarfjörður - s. 899-8994
Ábyrgðarmaður Árni Þorsteinsson - arni@veislumatur.is